Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1465387143.11

    Tölvunotkun - Upplýsingatækni
    TÖLN1GR03
    12
    Tölvunotkun
    Grunnáfangi í tölvunotkun
    Samþykkt af skóla
    1
    3
    Í þessum grunnáfanga í tölvunotkun er farið yfir notkun á töflureiknum, kynningarforritinu prezi, hugarkortum og ýmislegt annað tengt almennri tölvunotkun. Áhersla verður á að efni áfangans sé fjölbreytt og komi nemendum að notum í námi og starfi sínu.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • forritum sem þarf að nota í námi og starfi
    • þeim möguleikum sem tölvukunnátta getur veitt
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • setja upp gögn á skýran hátt í töflureikni
    • reikna með gögn í töflureikni
    • búa til heimasíður
    • nota ritvinnsluforrit
    • klippa myndbönd á Ipad
    • búa til kynningar með prezi
    • búa til hugarkort
    • læra sjálf á ný forrit
    • vinna saman í hóp með aðstoð netsins
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • sýna sjálfstæði og frumkvæði í vinnubrögðum
    • bera ábyrgð á eigin námsframvindu
    • vinna í hópi með aðstoð tölva og netsins
    Leiðsagnarmat. Fjölbreytt verkefni metin jafnt og þétt yfir önnina. Áhersla á umsagnir sem leiða nemandann áfram. Engin skrifleg lokapróf.