Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1465390969.07

    Permanent 5
    HPEM3FB02(EH)
    1
    Verklegt permanent
    Verklegt permanent
    Samþykkt af skóla
    3
    2
    EH
    Í áfanganum er unnið með permanent og aðferðirnar þróaðar s.s. svampa-, spírala-, parta-, eða rótarpermanent í mismunandi lengdir hárs. Nemandinn fær þjálfun í gerð varanlegrar sléttunar og kynnist þeim mörgu möguleikum sem hún gefur. Dýpkaður er skilningur á greiningu hárs, spjaldskrár- og verklýsingagerð. Unnið er á módelum og æfingarhöfði.
    HPEM2FB02DH
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • þróaðri tegundum permanents upprúlls.
    • aðferðum til varanlegrar sléttunar, partasléttunar og rótarsléttunar.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • rúlla upp ólíkum tegundum permanents.
    • nota svampa við upprúll.
    • gera spíralaupprúll.
    • greina ástand og áferð hárs.
    • slétta hár varanlega.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • ráðleggja viðskiptavini um val á gerð permanents.
    • ráðleggja viðskiptavini um möguleika varanlegrar sléttunar.
    • ganga vel um vinnusvæði, gæta öryggis og hreinlætis.
    Símat.