Markmið áfangans er að kynna fyrir nemandanum sem flesta þætti fagsins og sem fjölbreyttastan starfsvettvang. Hér kynnist hann ólíkri vinnustaðamenningu og samvinnu en þetta er undirbúningur fyrir frekara nám í faginu. Nemandinn fær fræðslu um það hvað felst í því að vera fagmaður í hársnyrtiiðn og innsýn í daglegt starf á hársnyrtistofu. Lagður er grunnur að sjálfstæði, siðferðisvitund og gagnrýninni hugsun í námi.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
starfi fagmannsins á ólíkum sviðum.
mikilvægi heilbrigðs lífstíls, góðra samskipta og framkomu.
mikilvægi þess að setja sér persónuleg markmið.
mikilvægi fagmannlegrar framkomu og góðra samskipta.
þjónustu á vinnustað.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
mannlegum samskiptum.
virðingu við ólíkt vinnuumhverfi og menningu.
kurteisi og faglegri framkomu.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
framkvæma hárþvott og höfuðnudd á vinnustað.
bera ábyrgð á verkfærum og áhöldum, sjálfum sér og öðrum.
sýna sjálfstæði, siðferðisvitund og gagnrýna hugsun í námi.