Nemandinn þjálfast í að taka sjálfstæðar faglegar ákvarðanir við dagleg störf á vinnustað, lærir að takast á við og mæta ólíkum þörfum viðskiptavina.
Fær aukna leikni í að tala við og ráðleggja viðskiptavinum út frá ólíkum líffræðilegum þáttum. Þjálfast í að vinna sjálfstætt og undir tímapressu og lærir að takast á við óvæntar uppákomur.
Öðlast góða þekkingu á hársnyrtivörum og reynslu í vörusölu og ráðleggingu til viðskiptavina.
Tekur tillit til ólíkra menningaþátta viðskiptavina og lærir á vinnustaðamenninguna.
VINS3FB06CH
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
ólíkum möguleikum og þörfum viðskiptavina.
faglegri framkomu.
mismunandi þáttum vörusölu.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
að vinna sjálfstætt við almenn störf á hársnyristofu.
að ráðleggja viðskiptavini út frá líffræðilegum þáttum.
samskiptum við samstarfsfólk.
samskiptum við viðskiptavini.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
takast á við dagleg verkefni á vinnustaðnum.
taka faglega á móti viðskiptavinum í síma og á staðnum.
beita sköpun, hraða og góðri verktækni við vinnu sína.
geta veitt faglegar ráðleggingar við hverskonar hársnyrtingu.
geta unnið sjálfstætt við úrlausn verkefna og einnig sem partur af teymi.