Iðnteikning er framhaldsáfangi í teiknifræðum og því eiga nemendur að öðlast frekari þjálfun í lestri og gerð fagteikninga skv. gildandi stöðlum, reglum og reglugerðum sem gilda fyrir fagteikningar í málmsmíði. Að áfanganum loknum skulu nemendur vera einfærir um að lesa og vinna eftir teikningum á vinnustað. Jafnframt skulu þeir vera einfærir um að teikna riss og vinnuteikningu og útfæra smíða- og lagnateikningar fyrir einstök verkefni.
IÐNT2AC05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
stöðluðum merkingum og táknum sem sérkenna fagteikningar
teikniaðferðum til að vinna fagteikningar
ísómetrískum teikniaðferðum
handbókum sem notaðar eru við gerð teikninga
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa teikningar hönnuða
táknsetja teikningar eftir stöðlum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
nýta samsetta heildarteikningu til að teikna vinnuteikningu af einstökum og samsettum smíðahlut
nýta framlagðar teikningar eða eigin teikningar til að teikna vinnuteikningu af einstökum og samsettum smíðahlut
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.