Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1465633318.38

    MAG - suða á stáli
    HLGS3MS04
    3
    Hlífðargassuða
    8-12 mm efnisþykkt, MAG suða, stál
    Samþykkt af skóla
    3
    4
    AV
    Í áfanganum læra nemendur að undirbúa og sjóða MAG-suðu á stáli á eigin spýtur þar sem notaðir eru gegnheilir og duftfylltir vírar. Þeir skulu geta soðið efnisþykktir 8 – 12 mm í stál, samkvæmt gæðaflokki C (ÍST EN 25817) í plötu í opinni V-rauf, gegnumsoðið frá annari hlið í suðustöðum PA, PC og PF, soðið rör í láréttri og lóðréttri stöðu og PD-FW. Nemendur læra að sjóða eftir suðuferilslýsingum og öðlast þekkingu á afköstum og hagkvæmni mismunandi suðuvíra og aðferða. Nemendur fá einnig þjálfun í að skipuleggja suðuverkefni m.t.t. krafna um gæði, öryggi og umhverfi.
    HLGS2SF04
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • suðuferilslýsingum og gildi þeirra
    • áhrifum mismunandi skögunar vírs á straumstyrk, afköst og innbræðslu
    • eiginleikum úðaboga- og stuttbogasuðu
    • gastegundum og gasblöndum sem notaðar eru við suðu á stáli
    • hlutverki hlífðargassins og stillingum þess
    • hlutverki duftsins í duftfylltum vírum
    • helstu gerðum af suðuraufum og notkun bakleggs
    • eiginleikum, flokkun og meðferð duftfylltra víra
    • mismunandi nýtingu málmfylltra víra, sjálfhlífandi víra, basískra víra og rútilvíra
    • helstu suðugöllum, sérstaklega þeim sem algengir eru í þykkum efnum
    • helstu hættum og varúðarráðstöfunum vegna geislunar, hita, ósonmyndunar, reyks, ásamt eldfimum efnum, hlífðarfatnaði og hlífum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • stilla suðutækin þ.e. straum, vírhraða, spennu og straumdempun (viðnám), þannig að hæfi efnisþykkt og suðurauf
    • sjóða í suðustöðum PA-BW, PA-FW, PB-FW, PF-BW, PF-FW, PC-BW og PD-FW
    • sjóða lárétta kverksuðu FW - PB , PD og lárétta stúfsuðu Y-rauf BW - PA með bakleggi 8-12mm
    • TIG sjóða botnstreng í suðustöðu PC og PF og MAG sjóða síðan yfirsuðu í suðustöðu PC og PF
    • undirbúa efnisrör fyrir suðu
    • gegnumsjóða 12 mm stálplötu öðru megin frá í PC- og PF-stöðu
    • sjóða eftir suðuferilslýsingum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • stilla gasflæði og velja gashulsu
    • meta algengustu suðugalla og orsakir þeirra
    • mæla og skrá viðeigandi upplýsingar varðandi suðuverkefnið s.s. forhitunarstig, raufarstærð og aðrar upplýsingar fyrir suðuferlislýsingar
    • velja vír m.t.t. efnis og suðuraufar
    • sinna viðhaldi á fylgibúnaði suðuvéla
    • greina helstu hættur, gera varúðarráðstafanir og nota viðeigandi öryggisbúnað
    Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.