Að áfanganum loknum geta nemendur beitt helstu vélum og verkfærum sem notuð eru við smíði úr ryðfríu efni. Þeir þekkja helstu efniseiginleika ryðfrís stáls og geta smíðað hluti úr því eftir nákvæmum teikningum. Ennfremur geta nemendur skipulagt vinnu sína m.t.t. krafna um gæði, öryggi og umhverfi. Að áfanganum loknum geta nemendur beitt helstu vélum og verkfærum sem notuð eru við smíði úr ryðfríu efni. Þeir þekkja helstu efniseiginleika ryðfrís stáls og geta smíðað hluti úr því eftir nákvæmum teikningum. Ennfremur geta nemendur skipulagt vinnu sína m.t.t. krafna um gæði, öryggi og umhverfi. Að áfanganum loknum eiga nemendur að geta smíðað eftir nákvæmum vinnuteikningum smíðagripi úr 1 –5mm plötujárni og prófílum og notað til þess algengustu vélar til plötuvinnu s.s. vals, beyguvél, plötu- og prófílklippur. Ennfremur geta þeir skipulagt vinnu sína m.t.t. krafna um hagkvæmni, gæði, öryggi og umhverfi.
SMÍÐ3SS05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mismunandi efnisgerðum ryðfrís stáls og notkunarsviði þeirra
mismunandi gerðum ryðfrís stáls eftir yfirborði og áferð
helstu vélum og verkfærum sem notuð eru við smíði úr ryðfríu stáli og notkunarsviði þeirra, s s.
klippum, beygjuvél og vals
grundvallaratriðum varðandi notkun á CNC–stýrðum vélum
áhrifum beyginga á stærð smíðisgripa úr ryðfríu stáli
hinum ýmsu yfirborðsmeðhöndlunum s.s. póleringu, glerblæstri og sýrubæsingu
tækjum og búnaði sem þarf til yfirborðsmeðhöndlunar
umgengnisreglum við ryðfrítt stál þannig að efnið hljóti ekki skaða af
plasmaskurðartækjum, uppbyggingu þeirra og notkunarmöguleikum við smíði úr ryðfríu stáli
hlífðarbúnaði sem við á þegar unnið er með vélum og verkfærum sem notuð eru við smíði úr ryðfríu stáli
öryggisreglum við yfirborðsmeðhöndlun og notkun hreinsiefna
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
klippa með hand- og vélklippum 1 – 5 mm þykkar plötur með 0,5 mm nákvæmni
nota plasmaskurðartæki á öruggan hátt
mæla smíðahluti samkvæmt staðlinum ÍST EN ISO 13920
smíða eftir teikningum hluti úr ryðfríu stáli
beita helstu vélum og verkfærum sem notuð eru við smíði úr ryðfríu efni
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
umgangast ryðfrítt stál þannig að efnið hljóti ekki skaða af
velja efni úr efnisrekka eftir gefnum forsendum um gerð og þykkt
velja beygjuklossa og stilla beygjuvélar m.t.t. efnisþykktar
stilla keflisvalsa með hliðsjón af efnisþykkt og útfært völsunarvinnu á plötum og prófílum
meta smíðahluti samkvæmt staðlinum ÍST EN ISO 13920
velja rétta lofttegund og verkfæri við skurð á ryðfríu stáli
skipuleggja vinnu sína m.t.t. krafna um hagkvæmni, gæði, öryggi og umhverfi
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.