Í áfanga þessum er viðfangsefnið alheimurinn, upphaf hans og þróun. Farið er í myndun sólkerfisins, þróun og endalok, fjallað um sólstjörnur, vetrarbrautir, líf í alheimi og hulduefni. Áfanginn byggir að miklu leyti á verklegum æfingum og verkefnum sem nemendur vinna undir leiðsögn kennara.
INNÁ1IN05 eða sambærilegur inngangsáfangi
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
• kenningum um þróun alheimsins
• kenningum um þróun sólkerfisins
• kenningum um myndun lífs
• stjörnum og stjörnumerkjum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
• lesa fræðilegan texta um stjörnufræði á íslensku og ensku
• nota stjörnukort
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
• yfirfæra fræðin á umhverfi sitt
• afla heimilda um stjörnufræði og meta gildi þeirra
• miðla upplýsingum um stjörnuhimininn á fjölbreyttan hátt