Í áfanganum fá nemendur að spreyta sig á ólíkri tækni, aðferðum og efnum innan handverks og listsköpunar. Verkefnin eru nokkuð frjáls í höndum nemenda undir leiðsögn kennara þar sem þeir koma til með að búa fallega hluti til úr mismunandi efnum með tilliti til efnis, litavals og útlits. Þeir læra að temja sér aðferðir við að skynja umhverfi sitt og nýta það til listsköpunar, eins og með endurnýtanleg efni. Ætlast er til að nemendur vinni sjálfstætt og þjálfist í gagnrýnni hugsun gagnvart eigin verkum og annarra og leitist við að vera frumlegir og skapandi í vinnubrögðum. Lögð er áhersla á skapandi, vönduð og sjálfstæð vinnubrögð.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Formum, línum og hreyfingu innan listsköpunar
Gildi lita og notkun þeirra í umhverfi okkar
Viðfangsefnum sem lúta að samspili umhverfis, ólíkra efna og aðferða
Ferli frá hugmynd að fullunnu verki
Sjálfbærni og að geta fundið efnivið í sínu nánasta umhverfi
Mikilvægi þess að sýna öguð og vönduð vinnubrögð í handverki
Umhverfismennt og endurnýtingu efna
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Nota hugmyndabók og að skrá hugmyndir
Beita sjálfstæðum vinnubrögðum og að sýna vandvirkni í verkefnavinnu
Skipuleggja eigið vinnuferli og gera uppdrætti/skissur að verkefni
Vinna með endurnýtanleg efni í handverki og listsköpun
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Nýta hæfni sína í listræna vinnu og sköpun
Sýna frumkvæði í verkefnavinnu og verkefnavali
Beita gagnrýnni og skapandi hugsun og sýna áræðni og frumleika við lausnir vinnu sinnar
Geta unnið á persónulegan hátt með eigin hugmyndir og útfært þær eftir sinni eigin tilfinningu í fallegan nytjahlut, skreyti eða skúlptúr
Vinna með efni úr nánasta umhverfi
Þroska færni sína og skilning á list og/ eða hönnun
Geta opnað augun fyrir hinum hversdagslegu hlutum í umhverfinu og nýtt þá í listsköpun
Vera sjálfbær og tileinka sér endurnýtanleg efni í listsköpun
Leiðsagnarmat. Fjölbreytt verkefni metin jafnt og þétt yfir önnina. Áhersla á umsagnir sem leiða nemandann áfram. Engin skrifleg lokapróf.