Í áfanganum læra nemendur að smíða eftir nákvæmum vinnuteikningum smíðagripi úr 5 -12 mm plötujárni og prófílum og nota til þess algengustu vélar til plötuvinnu s.s. vals, beyguvél, plötu- og prófílklippur. Nemendur læra að þekkja helstu efniseiginleika stáls og geta smíðað hluti úr því eftir nákvæmum teikningum. Ennfremur geta þeir skipulagt vinnu sína m.t.t. krafna um hagkvæmni, gæði, öryggi og umhverfi.
SMÍÐ3SS05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu efnisflokkum smíðastáls
helstu vélum og verkfærum sem notuð eru við plötusmíði
algengustu skurðaraðferðum
hve rétt vinnuröð við gerð smíðahluta er mikilvæg
helstu aðferðum við réttingu á stáli
hlífðarbúnaði sem við á þegar unnið er með vélum og verkfærum sem notuð eru við plötusmíðar
vörnum gegn hávaða- og loftmengun
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
beita algengum málmsmíðavélum, verkfærum og hjálparbúnaði sem þeim fylgja til nýsmíða úr plötum, prófílum og ryðfríu efni
framkvæma málmskurð með gas- og plasmaskurðartækjum
framkvæma skurð með málfrávikum ± 1 mm
smíða gripi úr plötum og prófílum eftir nákvæmum vinnuteikningum
vinna efnislista út frá teikningum og verklýsingum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skipuleggja vinnu sína m.t.t. krafna um hagkvæmni, gæði, öryggi og umhverfi
rétta plötu- og stangarefni með algengum kald- og hitaréttingaraðferðum
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.