Í áfanganum öðlast nemendur þekkingu til að velja stál og meðhöndla það á réttan hátt við vinnu sína. Þeir læra að notfæra sér staðla til þess að finna réttan málm fyrir þau verk sem þeir vinna að hverju sinni. Farið er yfir grunnatriði í framleiðslu á járni og stáli, formun þess og mótun, framleiðslu á steypujárni, steypuáli og öðrum málmum, bræðslu og storknun, eiginleika og notkun, svo og varmameðhöndlun á stáli.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
járnsteypu, flokkum hennar og eiginleikum
framleiðsluferli stáls, hvað er gert og í hvaða tilgangi
uppbyggingu stáls, göllum í atómbyggingu og áhrifum þeirra
hersluaðferðum, skilyrðum og stöðlum
vinnsluhæfni stáls og almenna vinnslu þess, þ.m.t. herslu, suðuhæfni, kostum og ókostum álmelma og ryðfrís stáls
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa úr stöðlum
segja til um herslumöguleika
skoða áhrif mismunandi álags á efnið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
velja stál, ryðfrítt stál, ál og aðra málma eftir stöðlum
velja hvaða efni hentar best fyrir mismunandi aðstæður og notkun
ákveða hvort hagkvæmt sé að steypa hlut eða vinna hann úr stáli
velja á milli smíðastáls, áls og ryðfrís
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.