Andlitsmeðferð framhaldsáfangi til sveinsprófs í snyrtifræði
ANMF3BA07(FB)
7
Andlitsmeðferð
Almenn húðmeðferð– verkleg vinna með fræðilega, bóklega tengingu
Samþykkt af skóla
3
7
FB
Nemendur læra verklag við rafræna meðferð, djúphreinsun og andlitsmaska. Þeir öðlast viðbótarþjálfun og færni í grunnþáttum húðmeðferðar ásamt litun augnhára og augabrúna. Lögð er áhersla á að kenna samþætt markmið í meðferð með tilliti til húðgerðar og frábendinga. Nemendur læra rétta efnisnotkun í verkþáttum og tengja við áfangann ANMF3BB04.
Byrjunaráfangar í andlitsmeðferð samkvæmt námsbrautarlýsingu snyrtibrautar.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
forsendum fyrir notkun hitagjafa í húðmeðferð
ólíkum djúphreinsiefnum og geti valið á milli efna eftir mismunandi húðgerðum
ólíkum rafmeðferðum og tengdra vara við húðsnyrtingu og hafi vald á vali þeirra eftir markmiði meðferðar
mismunandi andlitsmöskum og geti valið út frá mismunandi markmiði meðferðar
frábendingum varðandi meðhöndlun
mikilvægi á markvissu vali efna í andlitsmeðferð og markvissri ráðgjöf um snyrtivörunotkun
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
setja upp vinnuaðstöðu á skilvirkan og fljótlegan hátt
sýna örugg vinnubrögð í yfirborðshreinsun
undirbúa og lita augnhár og augabrúnir á fljótan og markvissan hátt og öðlast viðbótarfærni við blöndun og litaval.
plokka augabrúnir svo hæfi augnumgerð viðskiptavinar
húðgreina og fylla út húðgreiningarblöð fyrir ólíkar húðgerðir og vinna eftir þeim
velja mismunandi hitagjafa í húðmeðferð og nota þá á öruggan hátt
beita mismunandi vinnubrögðum við djúphreinsun eftir því hvaða djúphreinsivara er notuð
sýna örugga notkun rafrænna tækja við húðmeðferð og velja á milli ólíkra rafefna eftir markmiði og þörfum húðar
nudda markvisst andlit, höfuð og herðar með viðeigandi flæði og dýpt
setja á og fjarlægja andlitsmaska á viðeigandi hátt eftir mismunandi efnisgerð þeirra
rökstyðja val á snyrtivörum fyrir ólíkar húðgerðir og innihaldsefni í grunnþáttum húðmeðferðar, þ.e. hreinsivörur, nuddefni, krem og serum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
vinna í hóp til þess að auka skilning á verklega þætti námsins og samskiptatækni
undirbúa verkþætti og hafa skilning á mikilvægi vandaðra vinnubragða og fagmannlegrar framkomu
velja viðeigandi snyrtivörur í meðferð með tilliti til ástands húðar og markmiðum meðferðar
skilja við vinnuaðstöðu á viðeigandi hátt og sýna frágang áhalda og efna af þekkingu á mismunandi sótthreinsunarmiðlum
sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og bera ábyrgð á eigin námsframvindu
sýna fagmannleg vinnubrögð, vera háttvís í framkomu og viðhafa persónulegt hreinlæti
Vinnueinkunn (stöðumat, húðgreiningar, verkefnavinna, frammistaða í tímum) og lokapróf