Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1466504537.09

    Almenn fótsnyrting, byrjunaráfangi til sveinsprófs í snyrtifræði
    FOTS2BA04(FB)
    2
    Fótsnyrting
    Almenn fótsnyrting- grunnáfangi
    Samþykkt af skóla
    2
    4
    FB
    Í áfanganum læra nemendur vinnustöðu og verklag við grunnfótsnyrtingu. Þeir læra uppsetningu og undirbúning vinnuaðstöðu og móttöku viðskiptavina, greiningu á fótum, húð og nöglum. Áhersla er lögð á grunnþætti fótsnyrtingar eins og að þjala og bóna neglur, hreinsa naglabönd og sigg af fótum. Nemendur læra fótanudd, lökkun á tánöglum og að greina algengustu vandamál fóta og tánagla. Verklegar æfingar miða að því að nemendur þjálfist og geti veitt viðskiptavini fótsnyrtingu innan þeirra tímamarka sem til er ætlast. Lögð er áhersla á efnis- og vöruþekkingu varðandi alla verkþætti grunnfótsnyrtingar. Í bóklegum hluta áfangans læra nemendur um bein og vöðva fóta, séreinkenni húðar og nagla á fótum og algengustu fótamein. Nemendur læra einnig um ástæður mismunandi vandamála í húð og tánöglum svo sem húðþykknunar og niðurgróna nagla.
    HASN1AA05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • séreinkenni húðar á fótum og hvað húðþykknun er
    • byggingu fóta og algengustu fótameinum
    • algengustu vandamála sem geta komið í táneglur
    • vörum sem notaðar eru fyrir fótsnyrtingu
    • beinum í fótum
    • staðsetningu, upptök, festu og hreyfingu vöðva í fótum
    • mismunandi nuddhreyfingum í fótanuddi
    • efnum sem eru notuð við sótthreinsun áhalda og mikilvægi hreinlætis í fótsnyrtingu
    • hvernig góð vinnustaða er við fótsnyrtingu
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • setja upp vinnuaðstöðu fyrir fótsnyrtingu
    • sýna faglega framkomu við viðskiptavin
    • veita viðskipavini grunnfótsnyrtingu með nuddi og lökkun
    • geta greint fætur viðskiptavinar
    • greina algengustu fótamein vandamál tánagla geti gefið ráðleggingar við þeim
    • sótthreinsa áhöld og ganga frá vinnuaðstöðu á viðeigandi hátt
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • vinni í hóp til þess að auka skilning á verkþáttum og auka samskiptahæfni
    • undirbúa vinnuaðstöðu fyrir fótsnyrtingu og ganga efnum og áhöldum á viðeigandi hátt
    • hafa skilning á vönduðum vinnubrögðum, háttvísri og fagmannlegri framkomu
    • greina húð, neglur og naglaumgjörð á fótum og ákveða meðhöndlun og viðeigandi efnisnotkun fyrir viðkomandi
    • greina uppbyggingu fóta og gefið ráðleggingar á viðeigandi hátt
    • tengja undirstöðuþekkingu sína á litum til að velja hentugan naglalakklit fyrir viðskiptavini
    • tengja undirstöðuþekkingu sýna á staðsetningu vöðva til að gefa fótanudd á viðeigandi hátt
    • velja viðeigandi sótthreinsimiðil fyrir áhöld sem notuð eru í fótsnyrtingu
    • sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og bera ábyrgð á eigin námsframvindu
    Vinnueinkunn á önn og skriflegt lokapróf • Vinnufæri nemandans er metin á önninni með leiðsagnarmati á verklegri vinnu þar sem nemandi greinir fætur, vinnur fótsnyrtingu og velur efni til að vinna með á samnemendum og utanaðkomandi aðilum. • Krafa er um vönduð vinnubrögð og háttvísi í framkomu og er hún ein af forsendum þess að nemandi standist áfangann. • Þekking er metin með skriflegu lokapróf, skriflegum könnunum og verkefnum sem unnin eru heima.