Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1470309342.91

    Upplýsingatækni og tölvunotkun
    TÖLV2RT05
    17
    tölvur
    netsamskipti, ritvinnsla, upplýsingatækni
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Í áfanganum kynnast nemendur og læra að nota fjölbreyttan hugbúnað og tæki til samskipta og vinnu með upplýsingar og gögn á margvíslegu formi við lausn og framsetningu viðfangsefna í námi sínu. Lögð er á hersla á frumkvæði, ábyrgð og færni í vinnu með gögn af ýmsum toga ásamt færni í samskiptum, meðferð upplýsinga, sköpun og miðlun nýrrar þekkingar. Nemendur sýni ábyrgð og færni í vinnu með gögn af ýmsum toga ásamt færni í samskiptum, meðferð upplýsinga, sköpun og miðlun nýrrar þekkingar. Þeir öðlist hæfni í meðferð heimilda og virði höfundarétt ásamt öruggum netsamskiptum og siðferði á Netinu. Í áfanganum vinna nemendur með fjölbreytt verkefni sem reyna á sköpun og ímyndunarafl. Þeir læra að setja fram texta á skýran og læsilegan hátt. Í framsetningarforritum vinna þeir kynningar og kynna fyrir hópnum. Í ritvinnslu vinna þeir með texta af ýmsum toga og móta hann. Þeir setja upp ritgerðir með efnisyfirliti, töflu- og myndayfirliti. Nemendur læra að nota töflureikni og vinna með upplýsingar og töluleg gögn á margvíslegu formi við lausn og framsetningu á slíkum verkefnum. Markmið námsins er að stuðla að öflugri færni nemenda í fjölbreyttu náms- og starfsumhverfi með hjálp upplýsingatækninnar. Kennslan byggist einkum á verkefnavinnu nemenda og skilum á verkefnum og lögð áhersla á að nemendur verði færir í að nota tölvuna sem tæki í náminu. Lögð er rík áhersla á sjálfstæð og vönduð vinnubrögð og að námið nýtist sem góður undirbúningur fyrir frekara nám eða störf.
    Engar.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu póst- og samskiptanetum
    • flóknum aðgerðum í helstu forritum til framsetningar og miðlunar á texta
    • umhverfi og möguleikum töflureiknis og meðferð tölulegra gagna
    • höfundarétti og notkun heimilda
    • siðfræði og siðferði Netsins (upplýsinga- og tölvusiðfræði)
    • textavinnslu
    • gagnagrunnum og mikilvægi þeirra
    • upplýsinga- og menningarlæsi og mikilvægi þess (þróað læsi)
    • vefsíðugerð og vefhönnun
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • nota markvisst póst- og samskiptanet
    • móta og setja fram texta á ýmsan máta og átta sig á læsileika hans
    • fara með töluleg gögn og framsetningu á þeim
    • framkvæma flóknari aðgerðir í helstu forritum skrifstofuhugbúnaðar svo sem ritvinnslu og töflureikni
    • fara með heimildir og framsetningu þeirra
    • nýta netsamskipti á öruggan hátt
    • nota sjálfstæð vinnubrögð
    • gera heimasíður
    • framkvæma grunnaðferðir í gagnagrunni
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • meta, varðveita, skapa og miðla upplýsingum og þekkingu á skipulagðan og skilvirkan hátt (upplýsingalæsi)
    • vinna að mótun texta á ýmsan máta og stuðla að læsileika hans
    • vinna með heimildir eftir viðteknum venjum þar að lútandi og virða höfundarétt í vinnu með gögn af ýmsum toga
    • setja upp heimildaritgerð ásamt yfirlitum af ýmsu tagi, s.s. efnisyfirlit, mynda- og töfluyfirlit
    • setja upp viðskiptabréf/formbréf og nýta til þess tilbúin sniðmát
    • vinna með töluleg gögn, móta þau og setja fram á myndrænan hátt
    • nýta möguleika töflureiknis til útreikninga á flókinn máta
    • stunda örugg netsamskipti og sýna þar gott siðferði
    • vinna sjálfstætt að verkefnum
    • átta sig á mikilvægi menninarlæsis í tengslum við alþjóðasamskipti (menningarlæsi)
    • vinna að heimasíðugerð
    Námsmat í áfanganum tekur mið af ástundun nemenda yfir önnina, verkefnavinnu og skilum, æfingum og verklegum prófum. Þekking: Verkefni unnin í kennslustundum og heima eru metin jafnt og þétt yfir önnina. Leikni: Áfanginn er símatsáfangi og tekur mið af ástundun nemenda, verkefnavinnu, skilum á verkefnum og vegnu meðaltali einkunna úr prófum. Hæfni: Nemendur geti nýtt þá þekkingu og leikni sem þeir hafa aflað sér og sýni sjálfstæði í vinnubrögðum. Þeir lesi fyrirmæli og fylgi þeim, skrifi og tjái sig með eigin texta í framsetningarforritum og ritvinnslu. Þeir lesi og vinni með tölulegar upplýsingar í töflureikni. Lögð er rík áhersla á að námið nýtist sem góður undirbúningur fyrir frekara nám eða störf.