Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1471358177.6

    Bókmenntir,setningafræði og goðafræði
    ÍSLE2SG05
    25
    íslenska
    Bókmenntir, setningafræði og goðafræði
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Í áfanganum eru grundvallaratriði setningafræði kennd og fjallað um ýmislegt sem tengist málnotkun.Unnið með hugtök bókmenntafræðinnar, hugtök í bragfræði eru kynnt og nemendur læra að beita þeim. Nemendur lesa nútímabókmenntir, Íslendingasögu og annað það sem stuðlar að aukinni lestrarfærni og túlkun. Þá verður unnið með norræna goðafræði. Nemendur styrkja eigin málfærni með því að flytja ræður, endursagnir og kynningar ýmsar.
    Nemendur hafa lokið grunnskóla með einkunnina B eða hærri.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • hugtökum setningarfræðinnar
    • mismunandi tegundum bókmennta og grunnhugtökum í bókmenntafræði.
    • helstu goðum í norrænni goðafræði og hlutverki þeirra, vættum og öðrum átrúnaði
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • ritun þar sem gagnrýninni hugsun er beitt og skoðunum komið á framfæri á skýran og greinargóðan hátt
    • nota viðeigandi hjálpargögn við frágang ritsmíða
    • draga saman og nýta upplýsingar úr ýmiss konar heimildum og flétta saman við eigin viðhorf og ályktanir á faglegan og heiðarlegan hátt
    • nýta málfræðihugtök og málfræðilegar upplýsingar til að efla eigin málfærni
    • lesa sér til gagns og gamans nytjatexta og bókmenntaverk frá ýmsum tímum og fjalla um inntak þeirra
    • flytja af nokkru öryggi ræður, endursagnir, lýsingar og kynningar á tilteknum málefnum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • vinna í tengslum við námsefnið og sýna töluverð tilbrigði í málnotkun
    • styrkja eigin málfærni með því að nýta sér málfræðiupplýsingar í handbókum
    • beita skýru og blæbrigðaríku máli í ræðu og riti
    • taka þátt í málefnalegum umræðum, byggja upp skýra röksemdafærslu, tjá afstöðu og efasemdir um efnið og komast að niðurstöðu
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.