Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1471855798.69

    Afbrotafræði 1
    FÉLA2AB05
    76
    félagsfræði
    afbrotafræði
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Áfanginn er inngangur í afbrotafræði. Farið er í upphaf fræðigreinarinnar og þróun refsistefnunnar á Vesturlöndum. Helstu kenningar í afbrotafræðinni verða kynntar. Helstu afbrotaflokkar verða skoðaðir og rýnt verður í refsingar og fangelsismál í heiminum. Við skoðum síðan íslenskan veruleika, viðurlögin við afbrotum og refsistefnuna hér á landi. Hvers vegna brjóta menn af sér og hvað veldur því að sumir komast á beinu brautina en aðrir ekki?
    INNF1IF05. Inngangur að félagsvísindum eða sambærilegur áfangi.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu kenningum innan afbrotafræðinnar
    • helstu flokkum afbrota
    • helstu hugtökum innan afbrotafræðinnar
    • refsikerfinu og helstu viðurlögum við brotum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • beita gagnrýnni hugsun á mál og málefni tengd afbrotafræði
    • færa rök fyrir máli sínu í umræðum og vera umburðarlyndur fyrir skoðunum annarra
    • færa rök fyrir máli sínu í ræðu og riti fordómalaust og án áfellisdóma
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • mynda sér skoðanir um afbrot út frá kenningalegum grunni
    • leggja mat á refsistefu í heiminum og á Íslandi
    • leggja mat á þær ákvarðanir sem liggja að baki dómum í brotamálum
    • átta sig á þeim fyrirbyggjandi leiðum sem finnast til að halda mönnum frá afbrotum
    Leiðsagnarmat