Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1472814300.55

    Inngangur að tölvunotkun og upplýsingatækni
    UPPT1UT02
    37
    upplýsingatækni
    tölvunotkun, upplýsingamennt
    Samþykkt af skóla
    1
    2
    Í áfanganum kynnast nemendur ýmsum hliðum upplýsingatækninnar. Í fyrstu er farið í grunnatriði í tölvumálum og reglur sem gilda í tölvusamskiptum og umgengni við tölvukerfi skólans. Í tímum vinna nemendur verkefni í Open office (Calc töflureikni, í framsetningaforritinu Impress og ritvinnsluforritinu Writer). Áhersla er lögð á öguð vinnubrögð og skipulag við uppsetningu verkefna.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • þeim helstu möguleikum sem dropbox og google docs bjóða upp á
    • töflureikni og helstu aðgerðum sem hann býður uppá
    • framsetningarforrit og helstu aðgerðir sem það býður uppá
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • nota dropbox og/eða google docs í vinnslu verkefna innan framhaldsskólans og í áframhaldandi námi
    • nota Open office sér til hægðarauka í öðrum áföngum innan framhaldsskólans og í áframhaldandi námi
    • að vinna verkefni samkæmt viðurkenndum reglum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • setja upp verkefni eftir viðurkenndum aðferðum
    • geta vistað verkefni á öruggan hátt á dropboxi og/eða innan google docs
    • geta gert verkefni þar sem nemandi notar formúlur, jöfnur og setur upp gröf í töflureikni
    • geta notað möguleika Open office í alhliða tölvuvinnslu og verkefnavinnu
    Leiðsagnarmat þar sem vinna nemanda er metin jafnóðum allan námstímann. Til grundvallar matinu eru eftirfarandi þættir: Námsmat í áfanganum byggir á fjölbreyttum verkefnum úr ólíkum efnisþáttum. Einstaklinsverkefnum og hópverkefnum.