Saga Unix/Linux er skoðuð. Farið er í grunnmun á Unix og afsprengi þess, þ.e. Linux. Farið er í helstu skipanir í umhverfinu og nemendur kynnast muninum á því að vera notandi og stjórnandi í Linux umhverfinu. Farið er í þætti eins og skeljar, skráarvinnslu, skráarvernd, afritun, pípur, síur, ræsingu, lokun, o.fl. Farið er ýtarlega í skráarkerfið og öryggismál eru kynnt
USFS2AD04
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hvernig uppsetning á Windows Server er háttað
hvernig stillingum fyrir netkerfi er stjórnað í Windows Server
eftirliti með netkerfi sem tengt er við Windows Server
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
að setja upp Windows Server með þeim netþáttum sem þarf til
að stilla netkerfishluta Windows Server
að fylgjast með umferð notenda um Windows Server
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
reka Windows Server á innra neti
vera fær um að greina þau vandamál sem upp geta komið í daglegum rekstri
gera mat á hæfni búnaðar til að keyra Windows Server á innra neti
Lögð verður áhersla á fjölbreytt námsmat. Metin verða verkefni af ýmsu tagi sem nemendur leysa í kennslustundum og/eða heima.