Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1473774201.81

    Grunnáfangi á náttúruvísindabraut
    STÆR2GN05
    44
    stærðfræði
    grunnáfangi á náttúruvísindabraut
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Mengi, ójöfnur, algildi, veldi, veldareglur, brotnir veldisvísar og rætur, staðalform talna, algebrustæður, brot og margliður, jöfnur og formúlur. Skilgreining á falli, margliðuföll, fleygbogar, núllstöðvar, þáttun og margliðudeiling. Samskeytt föll, andhverf föll, ummyndanir. Margliður, 2. stigs föll.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • einföldum mengjareikningi og Vennmyndum
    • lotutugabrotum, náttúrlegum tölum, heilum tölum, ræðum tölum, rauntölum og bilum á rauntalnaásnum
    • undirstöðureglum talna- og bókstafareiknings og algildi
    • jöfnum af fyrsta og öðru stigi og ójöfnum
    • veldum, rótum og veldareglum
    • margliðum; þáttun, núllstöðvum og deilingu þeirra
    • beinum línum og fleygbogum og skurðpunktum grafa
    • fallhugtakinu, formengi falls og varpmengi
    • ummyndunum (hliðrunum, speglunum og stríkkunum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • nota mengi og Vennmyndir til að leysa verkefni
    • meðhöndla tölur og talnamengi
    • leysa jöfnur og ójöfnur
    • beita veldareglum og meðhöndla rætur og brotna veldisvísa
    • meðhöndla föll og gröf
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega á viðeigandi hátt
    • átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu stærðfræðilegra hugmynda og viðfangsefna
    • skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau
    • beita skipulegum aðferðum við að leysa úr viðfangsefnum og þrautum, s. s. út frá þekkingu á lausnum svipaðra þrauta, unnið til baka frá þekktum stærðum eða með því að setja upp jöfnur.
    Lokapróf og vinnueinkunn