Algengustu föll, deildun þeirra og helstu eiginleikar
STÆR3FD05
31
stærðfræði
algengustu föll, deildun þeirra og helstu eiginleikar
Samþykkt af skóla
3
5
Deildun falla og könnun þeirra. Markgildi, samfelldni og deildanleiki. Deildunarreglur.
STÆR3VH05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
meðhöndlun algengustu falla, s. s. margliða, veldis- og rótarfalla
lausnum jafna sérhæfðra falla, s.s. á hornafalla- og lograjöfnum
deildun falla, s.s. vísis- og lografalla og samsettra falla
hagnýtingu framangreindrar stærðfræði á öðrum sviðum, s.s. í hagfræði, náttúruvísindum, umhverfismálum, tæknifræði, o.s.frv.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
meðhöndla föll sem lýsa vísisvexti og nota logra til að leysa jöfnur og önnur viðfangsefni
reikna einföld markgildi og ganga úr skugga um hvort fall af einfaldri gerð sé samfellt og/eða deildanlegt
leysa há- og lággildisverkefni og önnur klassísk verkefni sem krefjast notkunar afleiðu, s.s. í sambandi við hraða og hröðun
nota skilgreiningu afleiðu til að leiða út formúlur fyrir afleiður falla
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega á viðeigandi hátt
átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu stærðfræðilegra hugmynda og viðfangsefna
skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau
geta fylgt og skilið röksemdir og röksamhengi í mæltu máli og texta, þar með taldar sannanir í námsefni
beita skipulegum aðferðum við að leysa úr viðfangsefnum og þrautum, s. s. út frá þekkingu á lausnum svipaðra þrauta, unnið til baka frá þekktum stærðum eða með því að setja upp jöfnur