Hornafallajöfnur, hornafallaójöfnur, þríhyrningareikningar, sínus og kósínusregla, vigrar, innfeldi og vigurreikningur
STÆR2LH05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
einföldum hornafallajöfnum og ójöfnum
vigrum og vigurreikningi
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
leysa hornafallajöfnur og ójöfnur
reikna með vigrum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega á viðeigandi hátt
átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu stærðfræðilegra hugmynda og viðfangsefna
skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau
geta fylgt og skilið röksemdir og röksamhengi í mæltu máli og texta, þar með taldar sannanir í námsefni
beita skipulegum aðferðum við að leysa úr viðfangsefnum og þrautum, s. s. út frá þekkingu á lausnum svipaðra þrauta, unnið til baka frá þekktum stærðum eða með því að setja upp jöfnur