Nemendur auka við þekkingu sína á ýmsum málefnum tengdum menningu, listum og félagsvísindum. Farið er í margvíslegt efni sem tengist þessu, svo sem texta, hlustunarefni, margmiðlunarefni og fleira. Nemendur vinna í hópum eða að einstaklingsverkefnum og nýta sér orðabækur og rafræn hjálpargögn. Í þessum áfanga verður einnig unnið með ýmis bókmenntaverk. Lesnir verða textar sem aðallega tengjast áherslum áfangans. Áhersla er lögð á sjálfstæð og öguð vinnubrögð.
ENSK2BB05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
ýmsum málefnum tengdum menningu, listum og félagsvísindum
menningu þjóða þar sem tungumálið er talað sem og eigin menningu í alþjóðlegu samhengi
uppbyggingu bókmenntatexta og hugtökum þeim tengdum
flóknari og sértækari orðaforða sem tengist efni áfangans
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
taka virkan virkari þátt í samskiptum og beita málfari við hæfi
lesa lengri bókmenntaverk
skrifa ritgerðir eftir frekari fyrirmælum um uppsetningu (inngangur, efnisyrðing, meginmál og lokaorð)
lesa texta sem byggja á sértækari orðaforða og snerta t.d. landafræði, bókmenntir, félagsvísindi o.fl.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skilja án teljandi vandkvæða megininntak erinda og rökræðna, jafnvel um tiltölulega flókið efni ef hann þekkir vel til þess
lesa á milli línana og átta sig á dýpri merkingu í texta
tjá sig á skýran og áheyrilegan hátt og beita tungumálinu af tiltölulega mikilli nákvæmni við margskonar aðstæður
skrifa ýmiskonar texta og fylgja þeim ritunarhefðum sem eiga við í hverju tilviki fyrir
Námsmat er tilgreint í kennsluáætlun og samræmist skólanámskrá.