Þar sem þetta er byrjunaráfangi, er megináhersla lögð á að nemendur tileinki sér undirstöðuatriði tungumálsins.
Strax frá upphafi eru nemendur þjálfaðir í lesskilningi ásamt samskiptaþáttunum tali, framsögn, hlustun og ritun í samræmi við Evrópska tungumálarammann. Áhersla er lögð á réttan framburð, uppbyggingu orðaforða og að þjálfa grunnatriði málfræðinnar. Fléttað er inn í kennsluna menningu þýskumælandi landa.
Lögð er áhersla á að nemendur geri sér ljósa eigin ábyrgð í málanámi og átti sig á mikilvægi eigin frumkvæðis og vinnu.
enginn undanfari
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta markmiðum áfangans
grundvallarþætti þýska málkerfisins
menningu, samskiptavenjum og siðum þýskumælandi landa og þjóðanna þar sem tungumálið er talað sem móðurmál/fyrsta mál
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
greina talað mál um kunnugleg efni þegar talað er hægt og skýrt og geta fylgt einföldum fyrirmælum og skilið helstu kveðjur og kurteisisávörp
lesa og greina orð og mjög einfaldar setningar úr daglegu lífi
taka þátt í einföldum samræðum og tjá sig um efni sem hann þekkir
tjá sig um sjálfan sig, fjölskyldu sína og atburði daglegs lífs með því að beita grunnorðaforða tungumálsins
skrifa stuttan, einfaldan texta um sjálfan sig og sitt nánasta umhverfi
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
hlusta á og greina einfalt talað mál um sjálfa/n sig og nánasta umhverfi og draga viðeigandi ályktanir
rökstyðja og bera saman notkun á einföldum setningum yfir athafnir daglegs lífs
leggja grunn að einföldum samræðum þannig að hann rökstyðji, spyrji og svari einföldum, algengum spurningum og spurningum um kunnug málefni
draga ályktanir og nota einföld orðasambönd og setningar til þess að segja frá búsetu sinni og fólki sem hann þekkir
skipuleggja frásögn og rökstyðja orðaval í skapandi skrifum
Fjölbreytt námsmat endurspeglar markmið áfangans í öllum færniþáttum í samræmi við evrópsku tungumálamöppuna (ETM). Námsmat er í formi símats, sem byggir á kennara-, sjálfs- og jafningjamati á virkni og verkefnaskilum nemenda, þar sem færniþættirnir lesskilningur, hlustun, tal og ritun, auk málfræði eru metnir.