Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1474624723.51

    Námstækni og hvatning
    NÁMI1NH01(01)
    1
    Námstækni og hvatning
    Námstækni og hvatning 1
    Samþykkt af skóla
    1
    1
    01
    Meginefni áfangans er námstækni, sjálfsstyrking og einstaklingsmiðuð hvatning. Helstu efnisþættir eru fjölmargar hliðar námstækni eins og tímaskipulag, glósu- og lestrartækni. Mikilvægi þess að vera meðvitaður um eigin heilsu og þá stjórn sem haft er á eigin heilsu og velgengni. Aðal áhersla áfangans er mikið utanumhald kennara, einstaklingsmiðuð þjónusta gagnvart nemendum og mynda stuðningshóp fyrir nemendur í brottfallshættu. Ásamt þjálfun nemenda í að taka alhliða ábyrgð á sjálfum sér í námi og daglegu lífi.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • námstækni sem tæki til að ná árangri í námi og starfi
    • markmiðssetningu
    • heilsufari í víðum skilningi, eins og næringu, hreyfingu, andlegri líðan, hugarfari og svefni. Hvernig heilsufar tengist sjálfsmynd og gengi í daglegu lífi.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • beita góðri námstækni
    • setja sér markmið
    • taka ábyrgð á sjálfum sér í námi og daglegu lífi
    • þekkja eigin styrkleika og veikleika.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • hafa sjálfstraust í verkefnum daglegs lífs
    • skipuleggja eigin tíma
    • ná eigin markmiðum í lífinu
    • ljúka skilgreindu námi.
    Í áfanganum er gert ráð fyrir leiðsagnarmati sem byggist á því að nemandinn fá með reglulegum og skipulegum hætti upplýsingar um hvernig hann stendur í náminu. Um er að ræða símatsáfanga þar sem metin er vinna í verkefnum, virkni og þátttaka nemenda í kennslustundum og mæting.