Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur læri um hlutverk þjálfara í íþróttastarfi, sérstaklega við þjálfun barna á aldrinum þriggja til tólf ára. Sérstaklega verður fjallað um íþróttaskóla og hreyfistundir með ungum börnum. Töluverð áhersla er lögð á hreyfiþroska og sálrænan þroska barna. Fjallað verður um skipulag þjálfunar, áætlanagerð og markmiðssetningu. Farið verður yfir upphitun bæði almenna og sérhæfða Einnig er lögð áhersla á að nemendur læri um uppbyggingu frjálsra félagasamtaka, sérstaklega íþróttafélaga. Nemendur læra um mikilvægi stefnumótunar og skrásetningar markmiða í félagsstarfi, um uppbyggingu félaga og kynnast skipulagi og helstu skipuritum sem starfað er eftir. Áfanginn er bæði bóklegur og verklegur.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hlutverki þjálfara í íþróttum
tilgangi upphitunar
uppbyggingu frjálsra félagasamtaka
starfsemi íþróttafélaga, sérgreina- og fjölgreinafélaga
mikilvægi samvinnu og hópstarfs í frjálsum félagasamtökum
hlutverki sínu sem fyrirmynd.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skipuleggja einstakar æfingastundir í samvinnu við kennara
greina á milli þjálfunar barna og fullorðinna
nýta sér upplýsingatækni við skipulag þjálfunar.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
stjórna upphitun fyrir alla aldurshópa
útbúa tímaseðla
skipuleggja þjálfun til lengri og skemmri tíma í samvinnu við kennara
skipuleggja keppnisferð með börnum.
Í áfanganum er gert ráð fyrir leiðsagnarmati en í því felst að nemandi fái með reglulegum og skipulegum hætti upplýsingar um hvernig hann stendur í náminu.