Í áfanganum er farið yfir helstu vistferla í vistkerfum, hringrásir, fæðutengsl, stofna og framvindu. Fjallað er um áhrif vistbreytinga á loft, láð og lög. Sérstaklega eru valin íslensk vistkerfi, landlæsi, gróður, jarðvegsrof og vistheimt. Farið er í náttúrusiðfræði og sjálfbæra þróun í umræðutímum og í verkefnavinnu. Viðfangsefni tengjast nærumhverfi nemenda og samfélagi en taka um leið mið af því sem gerist í umheiminum.
Umhverfismál eru í brennidepli í áfanganum og fjallað um gróðurhúsaáhrif, ósonlagið, súrnun sjávar, hringrásir efna, hnattræn umhverfisáhrif og alþjóðleg samvinnu og stefnumörkun í umhverfismálum. Sjónum verður sérstaklega beint að áhrifum hnattrænnar hlýnunar á norðurhjara, þ.m.t. Ísland, regnskóga, hafið, loftlagsbreytingar, vatn í veröldinni, landið, eldsneyti og ferðaþjónustu.
LÍFF2LF05 og LÆSI2NÁ10
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
sviði vist- og umhverfisfræði með sérstakri áherslu á sjálfbærni.
Einnig skal hann hafa getu til að nýta þessa þekkingu sína í verkefnum tengdum umhverfismálum.
í lok áfanga skal nemandi gera sér grein fyrir eigin ábyrgð í umhverfismálum og hvernig hann getur miðlað reynslu sinni og þekkingu til góðs í átt að sjálfbærni.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
afla sér gagna á gagrýninn og ígrundaðan hátt og vinna lausnamiðað með álitamál sem upp koma
rökræða og rökstyðja mál sitt í ræðu og riti.
Efla hæfileikann til að bregðast við nýjum og krefjandi aðstæðum.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skipuleggja eigin viðfangsefni og takast á við þrautir, beita gagnrýninni hugsun, vinna með álitamál og meta mögulegar lausnir
vera fær um að lesa í náttúruna og vera meðvitaður um gildi, viðhorf og tilfinningar sínar gagnvart hnattrænum áhrifum og jafnræði jarðarbúa
Auka víðsýni og styrkja viðhorf sitt til umhverfismála.
Efla siðferðisþroska svo hann eigi auðveldara með að setja sig í spor annarra.
Námsmat er tilgreint í kennsluáætlun og samræmist skólanámskrá.