Meginefni áfangans er talnareikningur, prósentureikningur, mengjaaðgerðir, liðun, þáttun, bókstafareikningur, bókstafabrot, veldi, rætur, jöfnur, ójöfnur, jöfnuhneppi, annars stigs jöfnur og margliður.
Aðaláhersla áfangans er á þjálfun í dæmareikningi úr þessum efnisatriðum.
Forkröfur: Grunnskólapróf með einkunn C eða hærra
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
tölum, forgangsröðun aðgerða, brotum og brotabrotum
hlutföllum, prósentum og einingaskiptum
mengjum og mengjaaðgerðum
frumtölum og frumþáttun
liðun, þáttun og bókstafabrotum
veldum, rótum, velda- og rótareglum
jöfnum af fyrsta og öðru stigi auk jöfnuhneppa og ójöfnum af fyrsta stigi
stigi, stuðlum, reikniaðgerðum og núllstöðvum margliða
notkun algengra stærðfræðitákna s.s jafnaðarmerkis og sviga
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nota allar algengar reiknireglur talnareiknings og bókstafareiknings
nota mengjaaðgerðir
frumþátta og átta sig á deilanleika út frá frumtölum
einfalda brot og brotabrot
liða og þátta stærðtákn og meðhöndla bókstafabrot
nota rætur og brotna veldisvísa
beita velda- og rótarreglum
leysa ýmis konar jöfnur, ójöfnur og jöfnuhneppi
nota margliðudeilingu
finna núllstöðvar margliða og þátta margliður
nota algeng stærðfræðitákn s.s. jafnaðarmerki og sviga
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skrá lausnir sínar skipulega og útskýra þær skilmerkilega í mæltu máli
átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu
vinna með merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu
beita gagnrýninni hugsun og sýna áræði, frumkvæði og innsæi við lausnir
beita skipulögðum aðferðum við að leysa verkefni og þrautir úr kunnuglegu samhengi, m.a. með því að setja upp jöfnur
klæða verkefni í stærðfræðilegan búning, leysa það og túlka lausnina í samhengi við upphaflegt verkefni
Námsmat er tilgreint í kennsluáætlun og samræmist skólanámskrá.