Helstu efnisþættirnir eru talnareikningur, prósentureikningur, mengjaaðgerðir, liðun, þáttun, bókstafareikningur, bókstafabrot, veldi, rætur, lograr, jöfnur, ójöfnur, jöfnuhneppi, annars stigs jöfnur, talnalínan, algildi, bil á talnalínu, margliður og þáttun margliða.
Aðaláhersla áfangans er á dæmareikning, afleiðslukerfi og röksemdafærslu stærðfræðinnar, m.a. með sönnunum á reglum í námsefninu. Einnig verður lögð áhersla á rétta notkun stærðfræðitákna og skipulagða framsetningu.
Grunnskólapróf með einkunn B eða hærra
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
tölum, forgangsröðun aðgerða, brotum og brotabrotum
hlutföllum, prósentum og einingaskiptum
mengjum og mengjaaðgerðum
frumtölum, frumþáttun, deilingu með afgangi, stærsta samdeili og minnsta samfeldi
liðun, þáttun og bókstafabrotum
veldum, rótum, logrum, velda-, róta- og lograreglum
jöfnum af fyrsta og öðru stigi auk jöfnuhneppa og ójöfnum af fyrsta stigi
algildum og algildisjöfnum
talnalínunni, bilum og hnitakerfinu
stigi, stuðlum, reikniaðgerðum og núllstöðvum margliða
notkun algengra stærðfræðitákna s.s. jafnaðarmerkis og sviga
skilgreiningum helstu hugtaka og sönnunum reglna í námsefninu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nota allar algengar reiknireglur talnareiknings og bókstafareiknings
nota mengjaaðgerðir
frumþátta og átta sig á deilanleika út frá frumtölum
einfalda brot og brotabrot
liða og þátta stærðtákn og meðhöndla bókstafabrot
nota algildi, rætur, brotna veldisvísa og logra
beita velda-, rótar- og lograreglum
leysa ýmis konar jöfnur, ójöfnur og jöfnuhneppi
finna færslu á talnalínu og fjarlægð og miðpunkt á talnalínu og í hnitakerfi
nota margliðudeilingu
finna núllstöðvar margliða og nota þáttareglu til að þátta margliður
finna formerki margliða
nota algeng stærðfræðitákn s.s. jafnaðarmerki og sviga
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skrá lausnir sínar skipulega og útskýra þær skilmerkilega í mæltu máli
átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu stærðfræðilegra hugmynda og viðfangsefna
skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau
beita gagnrýninni hugsun og sýna áræði, frumkvæði og innsæi við lausnir
beita skipulögðum aðferðum við að leysa verkefni og þrautir, m.a. með því að setja upp jöfnur
klæða verkefni í stærðfræðilegan búning, leysa það og túlka lausnina í samhengi við upphaflegt verkefni
fylgja og skilja röksemdir í mæltu máli og texta, þar með taldar sannanir í námsefni
Námsmat er tilgreint í kennsluáætlun og samræmist skólanámskrá.