Fjallað um gerð og virkni vökvakerfa í ökutækjum íhluti þeirra m.a. vökvadælur, strokka, vökvalagnir og vökvahreyfla. Farið í grunnreglur og útreikning á afli, vægi, afköstum, nýtingu og þrýstingi. Gerð ástandsskoðun á vökvakerfi, mældur kerfisþrýstingur og farið yfir nauðsyn reglubundins viðhalds og val á olíu fyrir vökvakerfi. Farið er yfir gerð og virkni sjálfvirkra gírkassa og íhluti þeirra. Farið er í grunnreglur og útreikninga á afli, vægi og afköstum. Fjallað er um reglubundið viðhald, ástandsskoðun og prófanir og mat á ástandi íhluta. Farið yfir vökvakerfisolíur og síur, vökvaleiðslur og tengi fyrir sjálfvirka gírkassa og almenn vökvakerfi. Þá er fjallað um hættur þegar unnið er undir ökutæki, meðhöndlun þungra hluta og skaðsemi olíu. Sérstök áhersla er lögð á hreinlæti og nákvæmni í vinnu við vökvakerfi.
BVAF2LG05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
drifbúnaði ýmissa bifreiða með sjálfvirkan gírkassa
grunnreglum og útreikning á afli, vægi, afköstum, nýtingu, þrýstingi
ferli afls frá vökvagír í sjálfskiptingu til hjóla ökutækis
íhlutum í sjálfvirkum gírkössum og hlutverk þeirra
uppbyggingu tengsla í sjálfvirkum gírkassa
olíum sem notaðar eru á sjálfvirka gírkassa og mikilvægi notkunar réttrar olíu
þrýstiventlum, stjórn- og skiptiventlum í sjálfvirkum gírkössum
þrýstiventlum, stjórn- og skiptiventlum í vökvakerfum
olíum sem notaðar eru á vökvakerfum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
sinna reglubundnu viðhaldi og að gera viðeigandi prófanir á sjálfvirkum gírkössum
taka sjálfvirkan gírkassa úr ökutæki og setja í aftur
taka í sundur og setja saman sjálfvirkan gírkassa
þrýstimæla vökvakerfi
gera einfaldar viðgerðir á vökvakerfum
lesa vökvakerfis teikningar og skýra virkni íhluta vökvakerfa
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
lýsa virkni algengra sjálfvirkra gírkassa
lýsa plánetugírasamstæðu
reikna gírhlutföll
lýsa virkni ventlahúss
lýsa mikilvægi olíuskipta og reglulegrar þjónustu við sjálfvirka gírkassa
lýsa algengum búnaði í vökvakerfum sem m.a. eru í lyftibúnaði
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.