Virkni, skoðun, stilling og prófun framleiðsluhluta hemlakerfa
BVHE3ÞH05(AV)
5
Hemlar ökutækja
Hemlar, hjálparhemlar, þrýstiloftshemlar
Samþykkt af skóla
3
5
AV
Farið er yfir algengar gerðir læsivarðra hemla. Skoðuð er virkni kerfanna og íhluta þeirra. Þjálfaðar eru aðferðir við eftirlit, prófanir og viðgerðir. Fjallað er um virkni, skoðun, stillingu og prófun framleiðsluhluta hemlakerfa. Farið er yfir stöðu- og neyðarhemlakerfi og hvernig þau eru skoðuð og prófuð. Farið er yfir gerð og virkni hjólhemla, m.a. læsivörn og þeir skoðaðir og stilltir. Þjálfuð er tækni við viðgerðir hjólhemla. Enn fremur leit að loftlekum í leiðslukerfi og viðgerðir á þeim. Kynnt eru hemlakerfi eftirvagna, farið yfir hjálparhemlakerfi, þ.e. drifskaftshemla, útblásturshemla og ýtihemla eftirvagna og æfð prófun hemla ökutækja í hemlaprófara. Áhersla er lögð á slysahættu við viðgerðir þrýstiloftshemlakerfa og ábyrgð viðgerðarmanna vegna akstursöryggis. Farið yfir loftfjöðrunarkerfi í smáum og stórum ökutækjum: framleiðslukerfi, loftbelgi, loft- og segulloka, þungaskynjunar- og hæðarstilliloka og höggdeyfa. Skoðun og skipti á loftfjöðrunarbelg. Stillingar á hæðarstilliloka. Handvirk hæðarstilling yfirfarin. Heildarskoðanir á undirvagni, þ.e. stýris-, fjöðrunar- og hjólabúnaði ökutækja.
BVHE2HÍ05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu gerðum þrýstiloftshemlakerfa og íhlutum þeirra
hjálparhemlum: drifskaftshemlum, útblásturshemlum og ýtihemlum eftirvagna
slysahættum við viðgerðir þrýstiloftshemlakerfa
ábyrgð viðgerðamanna vegna akstursöryggis
vinnuhætti læsivarðra vökvahemla
algengum gerðum læsivarðra vökvahemla
einstaka íhlutum hemlakerfanna
uppbyggingu loftfjöðrunarkerfa í ökutækjum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
gera reglubundið viðhaldi þrýstiloftshemla
skipta um eða gera við íhluti hemlakerfis
lofttæma vökvahemlakerfi
sinna algengum viðgerðum þessara fjöðrunar og hemlakerfa
meta ástand loftfjöðrunarkerfis
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
lýsa virkni þrýstiloftshemlakerfa og helstu hlutum þeirra
skoða og prófa hemlakerfi
meta almennt ástand kerfisins
finna minniháttar bilanir
prófa loftfjöðrunarkerfi og íhluti þeirra
gera stillingar og viðgerðir á loftfjöðrunarkerfum
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.