Yfirskrift áfangans er tungumál og miðlun. Þetta er máladeildaráfangi þar sem meðal annars er fengist við tengsl íslenskrar tungu og menningar við tungumál þau sem kennd eru við skólann og menningu tengda þeim. Einnig verða skoðuð tengsl þeirra við skyld tungumál. Lögð er áhersla á að nemendur nýti sér margmiðlun og komi frá sér efni á vandaðan hátt, til dæmis á vef eða í tímariti. Nemendur skila verkefnum með fjölbreytilegu móti munnlega og skriflega.
MENN2LÖ04
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
tungu og menningu þeirra tungumála sem kennd eru í skólanum
skyldleika tungumála í Evrópu, menningu þeirra landa þar sem þau eru töluð og tengsl við aðrar þjóðir
gömlum og nýjum leiðum við miðlun tungmálaþekkingar
uppsetningu og frágangi á kynningarefni
viðtalstækni
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
vinna einn og í hópum
flytja kynningar og fyrirlestra fyrir hópa
flytja kynningar með margmiðlunartólum á vef
fjalla um tungumál og menningu í samanburði við móðurmálið
nýta sér margmiðlunarefni við málanám
taka viðtöl og ganga frá þeim sem greinum í tímariti
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
sýna fram á tengsl íslenskrar tungu og menningar við skyld tungumál
flytja fjölbreytilegar kynningar fyrir framan hópa
taka góð og samfelld viðtöl
skila af sér vel uppsettu rituðu efni
gera kynningarmyndbönd og fræðsluefni fyrir vef
Námsmat er tilgreint í kennsluáætlun og samræmist skólanámskrá.