Farið yfir aðferðir við mat á ástandi búnaðar og íhluta í undirvagni og vinnubrögð við undirbúning og framkvæmd hjólastillinga, bæði tvíhjóla- og fjórhjólastillinga. Farið yfir hjólhorn og tilgang þeirra. Gerðar æfingar í hjólastillingum með vélrænum og rafrænum tækjum. Farið yfir ýmsar aðferðir til að mæla burðarvirki og undirvagn. Áhersla á hættur við vinnu undir ökutæki, nákvæm vinnubrögð og akstursöryggi eftir viðgerð.
BVSF2SF03
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hjólhornum og tilgangi með kröfum til stýris-, fjöðrunar- og hjólabúnaðar í reglugerð um gerð og búnað ökutækja
kröfum reglugerðar um gerð og búnað ökutækja sem varða hjólastillingar
aðferðum til að meta ástand burðarvirkis og yfirbyggingar
kröfum til burðarvirkis í reglugerð um gerð og búnað ökutækja
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
ástandsskoða stýris- og fjöðrunarbúnað
mæla og stilla hjólastefnu fólks- og flutningabifreiða
nota bilanagreini við miðjustillingu stýris
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
lýsa mælingu burðarvirkis, sérstaklega vegna hjólfestinga, stýris- og fjöðrunarbúnaðar
lýsa afleiðingum þess ef hjólhorn eru röng eða vanstillt
undirbúa hjólastillingu
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.