Helstu efnisþættir eru líkindarúm, skilyrt líkindi, óháðir atburðir, hagnýting líkindareiknings í erfðafræði, slembistærðir, dreififöll, líkindaföll, þéttleikaföll, væntigildi, fervik, staðalfrávik, strjálar og samfelldar líkindadreifingar, tveggja breytu slembistærðir, óháðar slembistærðir og samfylgni.
Aðaláhersla áfangans er á dæmareikning, afleiðslukerfi og röksemdafærslu stærðfræðinnar, m.a. með sönnunum á reglum í námsefninu. Einnig verður lögð áhersla á rétta notkun stærðfræðitákna og skipulagða framsetningu.
STÆR3HP07 eða STÆR3HX07
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
slembitilraunum, atburðum, líkindum og líkindarúmum
frumsendum Kolmogorovs
fyllilíkindum og samlagningarreglum fyrir tvo og þrjá atburði
skilyrtum líkindum, lögmáli fyrir heildarlíkindum og reglu Bayes
óháðum atburðum
hagnýtingu líkindareiknings í erfðafræði
líkindafræðilegum sönnunum í erfðafræði
slembistærðum, dreififöllum, líkindaföllum, þéttleikaföllum og hlutfallsmarki
skilgreiningum helstu hugtaka og sönnunum reglna í námsefninu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
finna líkindi á atburði og skilyrt líkindi með aðstoð margföldunarreglu, reglum um fjölda umraðana og samantekta og skilgreiningu og reglum um skilyrt líkindi
setja upp líkindarúm
segja til um hvort atburðir séu óháðir
finna líkindi og skilyrt líkindi í erfðafræði
finni útkomurúm, myndmengi og líkindafall slembistærða
skipta á milli dreififalls og líkinda- eða þéttleikafalls og finna hlutfallsmörk
finna væntigildi, fervik og staðalfrávik fyrir slembistærðir
vinna með ákveðnar líkindadreifingar
geta nálgað eina dreifingu með annarri
setja námsefnið fram skv. meginreglum stærðfræðilegrar framsetningar
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skrá lausnir sínar skipulega og útskýra þær skilmerkilega í mæltu máli
átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu stærðfræðilegra hugmynda og viðfangsefna og geta valið aðferð sem við á hverju sinni
skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau
átta sig á og gera greinarmun á nauðsynlegum og nægjanlegum skilyrðum fyrir lausnum verkefna
beita gagnrýninni hugsun og sýna áræði, frumkvæði og innsæi við lausn yrtra verkefna
leysa þrautir með skipulegum leitaraðferðum og uppsetningu jafna
klæða yrt verkefni í stærðfræðilegan búning, leysa það og túlka lausnina í samhengi við upphaflegt verkefni
fylgja og skilja röksemdir í mæltu máli og texta, þar með taldar sannanir í námsefni
geti beitt einföldum samsettum röksemdum
geti rakið sannanir í námsefninu og greint hvenær röksemdafærsla getur talist fullnægjandi sönnun
Námsmat er tilgreint í kennsluáætlun og samræmist skólanámskrá.