Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1475494025.62

    Þýska 3
    ÞÝSK1CC04(MA)
    20
    þýska
    Þýska 3
    Samþykkt af skóla
    1
    4
    MA
    Viðfangsefni undanfarans eru rifjuð upp og sett í nýtt samhengi. Áfram er lögð áhersla á að efla menningarvitund nemenda. Þekkingu á staðháttum og siðum þýskumælandi landa er fléttað inn í kennsluna og áhersla lögð á viðeigandi samskiptavenjur. Nemendur eru áfram þjálfaðir í færniþáttunum tali, hlustun og ritun og jafnframt eru gerðar meiri kröfur um að þeir tileinki sér fjölbreyttan orðaforða með lestri lengri texta. Ný og flóknari málfræðiatriði eru tekin fyrir. Gerðar eru meiri kröfur um sjálfstæð vinnubrögð nemanda og árangursríka námtækni.
    ÞÝSK1BB04
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mannlífi, menningu og siðum í þýskumælandi löndum
    • samskiptavenjum og mismunandi notkun málsins eftir aðstæðum
    • þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að ná hæfnimarkmiðum áfangans
    • grundvallarþáttum þýska málkerfisins
    • formgerð og uppbyggingu texta
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • fylgja aðalatriðum í samtali tveggja eða fleiri þegar rætt er um almenn efni og talað er skýrt og áheyrilega
    • fylgja söguþræði í einföldum eða einfölduðum textum
    • greina aðalatriði í blaðagreinum og textum um almennt efni
    • afla sér einfaldra og hagnýtra upplýsinga
    • segja frá og ræða við aðra um daglegt líf sitt, liðna atburði og áform
    • halda stutta kynningu á fyrirfram undirbúnu efni
    • skrifa samfelldan texta og bréf um ýmis efni
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • hlusta á og fara eftir leiðbeiningum, skilaboðum og tilkynningum sem tengjast daglegum athöfnum og bregðast rétt við
    • leysa úr viðfangsefnum einn eða í samstarfi við aðra
    • fylgjast með frásögnum og erindum og ná aðalatriðum um kunnuglegt efni úr fjöl- og myndmiðlum
    • tileinka sér aðalatriðin í fjölbreyttum textum og geta dregið ályktanir af því sem hann les
    • takast á við tilteknar aðstæður í samskiptum, beita viðeigandi mál- og samskiptavenjum og halda samtalinu gangandi
    • miðla á einfaldan hátt eigin þekkingu, skoðunum og tilfinningum sem og persónulegri reynslu, vonum og væntingum
    • hagnýta þann orðaforða sem áfanginn byggir á í ræðu og riti
    • skipuleggja nám í áfanganum og námsaðferðir við hæfi
    • meta eigið vinnuframlag og framfarir í þýskunáminu
    • sýna aga, metnað, sjálfstæð vinnubrögð, jákvæðni og trú á eigin getu
    Námsmat er tilgreint í kennsluáætlun og samræmist skólanámskrá.