Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1475495360.21

    Barnabókmenntir
    ÍSLE3BB04(MA)
    33
    íslenska
    barnabókmenntir
    Samþykkt af skóla
    3
    4
    MA
    Meginefni áfangans eru barna- og unglingabókmenntir. Nemendur velta fyrir sér læsi og mikilvægi bóklesturs í uppeldi barna og unglinga. Upphaf, saga og þróun barna- og unglingabókmennta er rakin og áhersla lögð á íslenska menningu í bland við stefnur og strauma erlendis frá. Nemendur lesa fræðigreinar um barna- og unglingabókmenntir og leggja mat á þær. Verkefnavinna nemenda er í forgrunni og skoðaðar verða kvikmyndir og leikrit.
    ÍSLE3FR05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • þróunarsögu íslenskra barna- og unglingabókmennta
    • eðli, uppruna og tilgang íslenskra barna- og unglingabókmennta
    • uppeldislegu hlutverki barna- og unglingabókmennta
    • mikilvægi læsis fyrir börn og unglinga
    • sögum ætluðum mismunandi aldurshópum
    • mismunandi tegundum barnabóka
    • mál- og menningarheimi barna og unglinga
    • ritgerðasmíð og heimildavinnu
    • íslensku máli sem nýtist í ræðu og riti
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • þekkja og skilja sögu og þróun íslenskra barna- og unglingabóka
    • fjalla af skilningi um afþreyingu fyrir börn og mikilvægi hennar
    • þekkja einkenni góðra barnabókmennta
    • leggja mat á fræðigreinar tengdar barna- og unglingabókmenntum
    • nýta sér fræðileg vinnubrögð við úrvinnslu efnis
    • rita heimildaverkefni
    • flytja af öryggi vel upp byggða ræðu eða ítarlega kynningu
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • meta með gagnrýnum huga barnabækur og barnaefni af ýmsu tagi
    • meta með gagnrýnum huga fræðigreinar og skrif um barna- og unglingabækur
    • geta valið og þekkt góðar barna- og unglingabækur
    • semja efni ætlað börnum og/eða unglingum
    • beita málinu á viðeigandi hátt við mismunandi aðstæður í ræðu og riti
    • skrifa skýran, vel uppbyggðan og grípandi texta
    • tjá rökstudda afstöðu við ýmsar kringumstæður
    Námsmat er tilgreint í kennsluáætlun og samræmist skólanámskrá.