Í áfanganum verður fjallað um ferðamennsku ungs fólks, menningu, sögu, landafræði og náttúru Íslands en einkum Norðurlands og hvernig megi laða innlenda og erlenda ferðamenn að landsvæðinu. Fjallað er um undirstöðuþætti miðlunar á ferðakynningarefni og unnið munnlega og skriflega að verkefnum á öllum þeim tungumálum sem nemandinn lærir í skólanum eða hefur önnur tök á. Auk kynningarefnis sem nemendur gera munu þeir spreyta sig við leiðsögn á heimaslóðum.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
menningu og sögu þjóðarinnar og hvað af því getur laðað að erlenda ferðamenn, til dæmis sögustaðir
landafræði og náttúru landshlutans og helstu náttúruvættum
aðferðum, tækjum og tólum til að búa til einfalt og árangursríkt kynningarefni
mikilvægi staðgóðrar tungumálakunnáttu, jafnt íslensku sem erlendra mála, og færni til að beita málum við munnlega og skriflega kynningu
undirstöðuatriðum í framsögn, framkomu og upplestri ritaðs máls og frágangi mynda og texta í bæklingum og kynningarefni
gildi þess að skrifa margvíslega texta, meðal annars útdrátt og endursögn á ólíkum tungumálum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
flytja mál sitt frammi fyrir áheyrendum á þeim tungumálum sem notuð eru við hvert verkefni
greina skilmerkilega frá því sem fyrir augu ber í kynnisferðum, einnig á mismunandi
útbúa kynningarefni með myndum og texta
beita mismunandi aðferðum eftir ólíkum hópum viðtakenda
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
segja með nákvæmni en áreynslulaust frá því helsta sem hrífa má ferðafólk
afla sér gagna á vefjum og bókum til að bæta kynningar sínar og kynningarefni
útbúa fjölbreytt ferðagögn
Námsmat er tilgreint í kennsluáætlun og samræmist skólanámskrá.