Í áfanganum er sjónum beint út fyrir landsteinana og verður nemendum úthlutað evrópskum borgum sem þeir munu vinna greinargerðir um. Nemendur eiga þar að leitast við að kynna sér staðhætti og menningu í viðkomandi borgum svo vel að þeir geti leiðbeint samnemendum sínum í vinnuferð í borginni. Í þessu verkefni verður sjónum beint að nokkrum Evrópulöndum og unnið með þau tungumál sem nemendur hafa lært í skóla eða annars staðar og töluð eru í löndunum. Nemendur fara til nokkurra þeirra borga sem valdar verða og safna heimildum sem síðar verða notaðar til að gera kynningarmyndband um borgina og kynningarefni um borgir erlendis fyrir grunnskólanemendur.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hvaða þættir í náttúru landa, sögu og menningu þjóða draga að sér ferðamenn, innlenda sem erlenda
hvað einkennir vinsæla ferðamannastaði
aðferðum, tækjum og tólum til að búa til árangursríkt kynningarefni og sjónum einkum beint að myndböndum
mikilvægi staðgóðrar tungumálakunnáttu, jafnt íslensku, erlendra mála, sem lærð eru í skóla, eða annarra mála sem hann hefur á færi sínu, einkum orðaforða og málfar sem hentar margvíslegri ferðaþjónustu
undirstöðuatriðum í framsögn, framkomu og flutningi kynningarefnis og frágangi á ritgerðum og myndmiðlum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skipuleggja vinnu við stórt heimildaverkefni og fylgja skipulaginu eftir
nota vönduð vinnubrögð við öflun mynd- og hljóðefnis og nota stafrænar ljósmynda- og myndbandstökuvélar og hljóðupptökutæki við öflun gagna
taka viðtöl á erlendum tungumálum og ganga frá því í myndmiðlum
greina skilmerkilega frá því sem fyrir auga ber í kynnisferðum
flytja mál sitt frammi fyrir áheyrendum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
afla sér gagna til að bæta kynningar sínar og kynningarefni
útbúa lifandi ferðagögn
segja með nákvæmni en áreynslulaust frá því helsta sem hrífa má ferðafólk
Námsmat er tilgreint í kennsluáætlun og samræmist skólanámskrá.