Í áfanganum læra nemendur að nýta sér tölvur við útreikninga, verkáætlanir og notkun eyðublaða við gæðastjórnun. Kennd
eru grunnatriði töflureiknis og verkáætlanaforrits til að hafa yfirsýn yfir kostnaðarþætti verkefna, verkefnastýringu, gerð
tímaáætlana, endurskoðun áætlana m.m. Kennd er notkun helstu eyðublaða og farið í stjórnunar‐ og verkferla
gæðatryggingar við verklegar framkvæmdir Farið er í gagnainnslátt í töflureiknum, breytingar á skjölum, forsnið, röðun
gagna, útlitshönnun og kenndar ýmsar grunnaðgerðir eins og summa og meðaltöl, formúlugerð, beinar og afstæðar tilvísanir
og tenging milli skjala. Fjallað er um áætlanagerð eins og sundurliðun verkefna, og Gantt‐rit í nýjustu forritum. Áfanginn er
sniðinn að þörfum bygginga‐ og mannvirkjagreina og fer kennslan að mestu fram með raunhæfum verkefnum þar sem m.a.
er unnið með verðskrár einstakra iðngreina.
10 einingar á 2 þrepi
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
verkefnastýringu/gæðastjórnu byggingaferli i verðskrám iðngreina og kostnaðaráætlunum
gerð kostnaðaráætlana og notkun töflureiknis við útreikninga uppbyggingu og gerð kostnaðaráætlana
uppbyggingu töflureikna og hagnýtingu þeirra
áætlanagerð og verkáætlanaforritum
tölvuforritum sem notuð eru til að gera verkáætlanir og hagnýtingu þeirra
helstu stjórnunar‐ og verkferlum
gæðatryggingar við verklegar framkvæmdir skipuritum og starfslýsingum
meðhöndlun og vistun nýrra teikninga og verklýsinga
móttöku efna á vinnusvæði
dagbókarhaldi og úttektum
meðhöndlun frábrigða/galla
innra eftirliti með einstökum verkþáttum verkefnis‐ og verkþáttarýni
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
magntaka og kostnaðarreikna einfalda þætti verklegra framkvæmda
gera verk og tímaáætlanir
fylgja eftir gæðastjórnun á verkferlum
vinna eftir bygginga‐ og skipulagslögum nota töflureikni við útreikninga
nota verkáætlanaforrit við gerð tímaáætlana
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
magntaka og kostnaðarreikna einfalda verkþætti á sjálfstæðan hátt
beita tíma‐ og hráefnisskráningu
vinna með tölvuforrit sem notuð eru til að gera verkáætlanir
beita og fylgja eftir innra eftirliti með einstökum verkþáttum
fara að lögum og reglugerðum um skipulags‐ og byggingarmál
Mælt er með því að námsmat byggi á verkefnavinnu og prófum og einhverjir hlutar þess tengist vinnu í þeim
forritum sem nemendur lærðu á í áfanganum. Æskilegt að áfanginn sé tekin á lokaönn.