Í áfanganum er lögð áhersla á skapandi skrif og íslenskar bókmenntir eru í brennidepli. Nemendur kynnast helstu rithöfundum Íslands og verkum þeirra, m.a. með ýmiss konar verkefnavinnu, bæði skriflegri og munnlegri. Unnið verður markvisst að þjálfun í skrifum á örsögum og ýmiss konar lýsingum viðburða og persóna.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
nokkrum helstu rithöfundum Íslands og verkum þeirra
mikilvægi lesturs
mikilvægi þess að geta tjáð sig skýrt, jafnt munnlega sem skriflega
ritun mismunandi texta.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa mismunandi texta sér til gagns
lesa sér til dægrastyttingar
tjá tilfinningar sínar og skoðanir í texta
rita mismunandi texta við sitt hæfi.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
tjá tilfinningar sínar skipulega í texta
lesa sér til dægrastyttingar
þekkja til helstu rithöfunda Íslands og verka þeirra
koma skoðunum sínum á framfæri í ræðu og riti
rita einfalda texta og sögur.
Í áfanganum er gert ráð fyrir leiðsagnarmati en í því felst að nemandinn fái með reglulegum og skipulegum hætti upplýsingar um hvernig hann stendur í náminu.