Í áfanganum er unnið með alla þætti íslenskunnar og bókmenntir hafðar að leiðarljósi. Nemandinn fær tækifæri til að læra í gegnum bókmenntir og vinna með þær á fjölbreyttan hátt. Áhersla er lögð á að nemandinn bæti orðaforða sinn og efli sjálfstraust sitt og trú á eigin málnotkun. Jafnframt er áhersla lögð á að nemandinn auki les- og/eða hlustunarskilning sinn og æfist í að skilgreina hugtök sem koma fram í texta. Nemendur fá þjálfun í að tjá skoðanir sínar í gegnum uppbyggilegar samræður. Notast er við aldursmiðaðar bókmenntir og fjölbreytt verkefni. Megin áhersla er á að nemandinn viðhaldi og byggi ofan á þann grunn sem hann býr nú þegar að.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
aldursmiðuðum bókmenntum
uppbyggingu bóka
mikilvægi lesturs/hlustunar sem nýtist í daglegu lífi
innihaldi og söguþræði bókmennta.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nota og/eða tileinka sér nýjan orðaforða
lesa og/eða hlusta á mismunandi texta sér til gagns og gleði
tjá skoðanir sínar.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
nýta sér bókmenntir í daglegu lífi til gagns og/eða gleði í hvaða formi sem er, t.d. ritaðar bækur, hljóðbækur og rafbækur
spyrja spurninga og hlusta á sjónarmið annarra af víðsýni
láta skoðanir sínar í ljós
auka sjálfstraust í ræðu og/eða riti
greina innihald og söguþráð.
Í áfanganum er gert ráð fyrir leiðsagnarmati en í því felst að nemandinn fái með reglulegum og skipulegum hætti upplýsingar um hvernig hann stendur í náminu.