Í áfanganum er lögð áhersla á að auka markvisst orðaforða nemenda og þjálfa lestrarfærni með því að lesa ýmiss konar rit, eyðublöð og gögn sem nemendur koma til með að nota í nánustu framtíð. Nemendur fá þjálfun í munnlegri tjáningu með því að taka þátt í málefnalegum umræðum, tjá afstöðu sína til umræðuefna og komast að niðurstöðu. Unnið er að ritun ýmiss konar texta og reynt að virkja ímyndunarafl nemenda með sögu- og ævintýragerð af ýmsu tagi.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
orðfæri sem notað er t.d. í atvinnuumsóknum, skattaskýrslum, leiðbeiningum ýmiss konar o.fl.
mikilvægi lestrar
mikilvægi þess að geta tjáð sig skýrt og gera grein fyrir skoðunum sínum
ritun mismunandi texta.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa mismunandi texta sér til gagns
tjá skoðanir sínar og taka þátt í rökræðum
rita mismunandi texta við sitt hæfi.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
lesa sér til gagns ýmsa texta, leiðbeiningar og eyðublöð
lesa sér til dægrastyttingar
tjá skoðanir sínar og geta komist að niðurstöðu í rökræðum
virkja ímyndunarafl sitt og getað rita einfalda texta og sögur.
Í áfanganum er gert ráð fyrir leiðsagnarmati en í því felst að nemandinn fái með reglulegum og skipulegum hætti upplýsingar um hvernig hann stendur í náminu.