Í áfanganum er unnið með ýmsa grunnþætti íslenskunnar, svo sem lestur, lesskilning, ritun og tjáningu. Unnið er að því að nemendur verði færir í alls kyns textavinnslu á tölvutæku formi og kynnist þeim möguleikum sem tölva og netið bjóða upp á. Nemendur lesa ýmsa texta sem birtast í miðlum á netinu og vinna með þá ásamt því að fá þjálfun í ritun og tjáningu.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
þeim möguleikum sem tölva býður upp á til meðhöndlunar texta
mismunandi miðlum á netinu
ritun og framsetningu texta í tölvutæku formi
mikilvægi tjáningar.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
rita texta á tölvutæku formi
lesa mismunandi texta á netinu sér til gagns
rita mismunandi texta við sitt hæfi
tjá sig á margvíslegan hátt.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skila tölvuunnum verkefnum og senda rafrænt til kennara
lesa ýmsa texta á netinu s.s. fréttir og fræðigreinar
rita einfalda texta, sögur og ljóð
tjá eigin skoðanir.
Í áfanganum er gert ráð fyrir leiðsagnarmati en í því felst að nemandinn fái með reglulegum og skipulegum hætti upplýsingar um hvernig hann stendur í náminu.