Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1476271087.76

    Bókmenntir
    ENSK1BÓ03(11)
    22
    enska
    bókmenntir 20. aldar
    Samþykkt af skóla
    1
    3
    11
    Í áfanganum er áhersla lögð á læsi í víðu samhengi, s.s. á bókstafi og hljóð, umhverfi, tákn, reglur, samskiptamiðla, hugtök, tjáskipti, tilfinningar, lesefni og samskipti. Vinnuferlið miðast við að efla færni og sjálfsmynd nemenda til að takast á við fjölbreytt lesefni við hæfi hvers og eins.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • einföldum bókmenntatexta á enskri tungu
    • ýmsum aldurs- og áhugamiðuðum hugtökum á enskri tungu
    • mikilvægi lesturs og bókmennta
    • mikilvægi tjáningar og hlustunar.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • finna sér bókmenntir við hæfi á bókasöfnum og öðrum stöðum
    • nýta sér bókmenntir á fjölbreyttu formi, s.s. á stafrænum miðlum
    • tjá sig í mæltu og/eða rituðu máli
    • vinna með texta sem hann hefur lesið og/eða hlustað á
    • nýta sér leiðréttingarforrit og önnur hjálpargögn til verkefnavinnu
    • lesa upp og/eða tjá sig fyrir framan aðra
    • lesa og/eða hlusta á texta sér til gagns og gleði.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • nýta sér enskar bókmenntir
    • auka sjálfstraust sitt og trú á eigin málfærni í tjáningu og/eða ritun
    • nýta sér læsi í víðu samhengi
    • hlusta á sjónarmið annarra af víðsýni
    • lesa í og/eða nýta sér upplýsingar sem koma fram í útvarpi, sjónvarpi og í netmiðlum
    • lesa í umhverfi, samskipti, tilfinningar og reglur í þeim tilgangi að átta sig á hvað er viðeigandi hverju sinni
    • hlusta á aðra og tjá eigin skoðanir
    • lesa ýmsa texta, s.s. bækur, fréttir og fræðigreinar.
    Í áfanganum er gert ráð fyrir leiðsagnarmati en í því felst að nemandinn fái með reglulegum og skipulegum hætti upplýsingar um hvernig hann stendur í náminu.