Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1476272534.17

    Peningar
    STÆR1DL03(12)
    36
    stærðfræði
    Peningar, tímahugtök, verðgildi
    Samþykkt af skóla
    1
    3
    12
    Í áfanganum er áhersla lögð á peninga og gildi þeirra. Unnin verða mismunandi verkefni, farið í vettvangsferðir í verslanir, veraldarvefurinn nýttur og notaðir verða tilboðsbæklingar og spil. Stefnt er að því að viðhalda og byggja ofan á þann grunn sem nemandi hefur þegar tileinkað sér.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • íslenskum peningum
    • gildi og meðferð peninga
    • því að til eru fjölbreyttir gjaldmiðlar.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • borga og/eða taka við viðeigandi peningaupphæðum
    • þekkja íslenska peninga
    • nýta sér og/eða vinna með peninga í víðu samhengi.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • nýta sér peninga í athöfnum daglegs lífs
    • framkvæma greiðslu eða borgun í réttu hlutfalli við útgjöld
    • nýta sér viðeigandi hjálpartæki þegar það á við, s.s. reiknivél í símum
    • átta sig á hvaðan peningarnir koma og mikilvægi þess að halda vel utan um þá.
    Í áfanganum er gert ráð fyrir leiðsagnarmati en í því felst að nemandinn fái með reglulegum og skipulegum hætti upplýsingar um hvernig hann stendur í náminu.