Í áfanganum er áhersla lögð á tímahugtök. Unnið verður með þau á fjölbreyttan hátt, s.s. í gegnum verkefnavinnu, veraldarvefinn og verklegar æfingar. Stefnt er að því að viðhalda og byggja ofan á þann grunn sem nemandi hefur þegar tileinkað sér.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
algengum tímahugtökum
vikudögum
mánuðum
dagsetningum.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa í og/eða nýta sér dagatal
lesa á klukku
breyta dagsetningu úr rituðu máli yfir í tölustafi.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
nýta sér tímahugtök í daglegu lífi
átta sig á árstíðum og þeim mánuðum sem tilheyra hverri árstíð
nýta sér viðeigandi stuðningstæki þegar það á við, s.s. dagatal
vera stundvís.
Í áfanganum er gert ráð fyrir leiðsagnarmati en í því felst að nemandinn fái með reglulegum og skipulegum hætti upplýsingar um hvernig hann stendur í náminu.