Í áfanganum er áhersla lögð á verðútreikninga, verðsamanburð, verðgildi og þjálfun nemenda í að lesa á verðmiða í verslunum. Farið verður í gildi peninga ásamt verklegum æfingum í búðarferðum. Stefnt er að því að viðhalda og byggja ofan á þann grunn sem nemandi hefur þegar tileinkað sér.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
því hvernig heimilisinnkaup fara fram
gildi peninga
fjölbreytileika verslana
mikilvægi innkaupalista
upplýsingum á verðmiðum og kassakvittunum.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nýta sér innkaupalista
nota peninga eða kort
lesa á verðmiða
fara í mismunandi verslanir
fara yfir kassakvittun.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
búa til innkaupalista
versla inn fyrir heimili
gera verðsamanburð.
Í áfanganum er gert ráð fyrir leiðsagnarmati en í því felst að nemandinn fái með reglulegum og skipulegum hætti upplýsingar um hvernig hann stendur í náminu.