Í áfanganum er fjallað um um tilfinningar og almenna líðan. Einnig heiti ýmissa líkamshluta og hvaða hlutverki þeir gegna. Rætt er um að líkami sé einkaeign sérhvers einstaklings.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
líkamanum og starfsemi hans
mismunandi tilfinningum.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skilja eigin tilfinningar
hemja tilfinningar ef þær verða yfirdrifnar
virða tilfinningar annarra
þekkja líkama sinn, starfsemi hans og vita hvaða hlutverki helstu líkamshlutar gegna vera meðvitaður um að hann ráði yfir líkama sínum
þekkja einkasvæði
kunna að setja mörk.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
geta stjórnað tilfinningum sínum á sem bestan hátt
virða tilfinningar annarra
tileinka sér lífsstíl sem stuðlar að góðri heilsu og líkamlegum framförum.
Í áfanganum er gert ráð fyrir leiðsagnarmati en í því felst að nemandinn fái með reglulegum og skipulegum hætti upplýsingar um hvernig hann stendur í náminu.