Í áfanganum er áhersla lögð á að efla þekkingu, leikni og hæfni nemenda í notkun tjáskiptaleiða sem henta hverjum og einum. Megin áhersla er lögð á að viðhalda og byggja ofan á þann grunn sem nemendur búa nú þegar að. Notaðar eru fjölbreyttar kennslu- og námsmatsaðferðir, s.s. umræður, framsagnarverkefni, hugtakaverkefni og fjölbreytt verkefni sem stuðla að því að styrkja sjálfsmynd nemenda.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
samskiptaleið sem hentar viðkomandi
skoðanafrelsi og/eða tjáningarfrelsi
mikilvægi þess að láta skoðanir sínar í ljós og hlusta á sjónarmið annarra.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
tjá sig fyrir framan nemendahópinn
virða skoðanir annarra
leggja mat á eigin verkefni og/eða frammistöðu
taka þátt í umræðum og tjá eigin skoðanir.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
vera meðvitaður um styrkleika sína
spyrja spurninga og hlusta á sjónarmið annarra af víðsýni
bera virðingu fyrir skoðunum annarra
kynna sjálfan sig með fullu nafni og svara spurningum um fyrirfram ákveðin viðfangsefni
bíða eftir að röðin komi að honum.
Í áfanganum er gert ráð fyrir leiðsagnarmati en í því felst að nemandinn fái með reglulegum og skipulegum hætti upplýsingar um hvernig hann stendur í náminu.