Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1476439492.37

    Heilbrigði, forvarnir, nám og skóli
    LÍFS1HN05(18)
    38
    lífsleikni
    Heilbrigði, forvarnir, nám, skóli
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    18
    Í áfanganum er áhersla lögð á andlegt, líkamlegt og félagslegt heilbrigði. Einnig samspil einstaklings, aðstæðna og umhverfis. Notast er við atburði líðandi stundar sem umræðuefni og sögulegar staðreyndir. Megin áhersla er lögð á að nemandinn viðhaldi og byggi ofan á þann grunn sem hann býr nú þegar að.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • hugtökunum heilbrigði og velferð
    • mikilvægi þess að nýta hæfileika sína
    • mikilvægi þess að borða heilsusamlega
    • mikilvægi hreyfingar og hvíldar
    • hugtökunum hollusta, hvíld, hreyfing, hreinlæti, hamingja, hugrekki og kynheilbrigði.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skoða og meta eigið heilbrigði og eigin velferð
    • vinna með öðrum
    • taka tillit til annarra
    • sýna samkennd
    • taka þátt í umræðum og tjá eigin skoðanir.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • vera meðvitaður um styrkleika sína
    • spyrja spurninga og hlusta á sjónarmið annarra af víðsýni
    • tileinka sér jákvætt hugarfar
    • auka eigið heilbrigði og velferð.
    Í áfanganum er gert ráð fyrir leiðsagnarmati en í því felst að nemandinn fái með reglulegum og skipulegum hætti upplýsingar um hvernig hann stendur í náminu.