Í áfanganum er unnið með Norðurlöndin og fjallað um helstu borgir hvers lands. Einnig verða sameiginlegir þættir landanna skoðaðir ásamt því hvað gerir þau ólík.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
nöfnum Norðurlandanna
höfuðborgum Norðurlandanna
helstu kennileitum er tengjast Norðurlöndunum
vinsælum ferðamannastöðum á Norðurlöndum.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nefna og aðgreina Norðurlöndin
setja sig í spor ferðamanns og ferðast á hina ýmsu staði
leita mismunandi leiða í vinnuferlinu
nálgast viðfangsefni á mismunandi hátt
beita mismunandi aðferðum í vinnuferlinu.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
taka þátt í umræðum um Norðurlöndin
greina á milli aðal- og aukaatriða
lesa í og/eða nýta sér mismunandi upplýsingar í umhverfinu
hlusta á sjónarmið annarra af viðsýni
taka eftir ólíkum viðfangsefnum.
Í áfanganum er gert ráð fyrir leiðsagnarmati en í því felst að nemandinn fái með reglulegum og skipulegum hætti upplýsingar um hvernig hann stendur í náminu.